Friday, May 10, 2013

Alveg sprell!


---

Jæja!

Hér er ég,sprell lifandi,glöð og kát. Ég virðist hafa gleymt því í smá tíma að ég væri með blogg. Eða þá bara ekki nennt að sinna því. Segjum samt frekar að ég hafi gleymt mér..það er krúttlegra.

Síðan ég skrifaði síðast hefur afmælishrinan á heimilinu komið og farið. Árni er orðinn enn eldri en hann var og Birkir Ísak lo-hoksins orðinn 5 ára!! Hann tekur aldrinum mjög hátíðlega og er rosa upptekinn af því að það styttist í skólagöngu hjá honum,svo að hann leggur mikinn metnað í það að læra að lesa og skrifa og stendur sig svo vel.






-bestur-

---

Nú bíðum við svo bara spennt eftir alvöru sumri. Þetta hlýtur að fara að detta inn..ehaggi?? Siggi Stormur?? Haaaaa???



Monday, April 8, 2013

Afmælisstrákur.

---

Apríl er mikill afmælismánuður á okkar heimili. Þá eiga Gunnar,Árni og Birkir allir afmæli.

Gunnar Bergvin á afmæli fyrstur,en hann varð 3 ára í gær,þessi litli yndisklumpur okkar!



Hér er afmælisstrákurinn með fínu kórónuna sína og í uppáhalds sokkunum sínum (já hann á uppáhalds sokkapar), bleiku fínu sokkunum.

---

Hér eru nokkrar afmælismyndir af Gunnari Bergvin:





Hann er sko karakter þessi litli kall. :)

---

Næsta afmæli er svo 10 apríl þegar Árni á afmæli. Það er sko endalaust partýstand á þessum bænum.

---



Monday, March 25, 2013

Ljósmyndarinn Róbert.

---

Róbert Elí,7 og hálfs árs(hálfa árið er mjög mikilvægt að sjálfsögðu),hefur alltaf haft mikinn áhuga á því að taka myndir. Hann hefur átt sína myndavél síðan hann var 5 ára og hefur verið duglegur að taka myndir á hana. Núna nýlega fór ég svo að treysta honum fyrir stóru vélinni minni og hann hefur verið að prófa sig áfram með hana. Hann er farinn að taka fínar myndir og hefur greinilega gott auga. Hann hefur fengið sitt eigið albúm inni á myndasíðunni minni,og við vorum að setja inn í það myndir frá því að við fórum í Húsdýragarðinn um daginn.

Endilega kíkið á fínu myndirnar hans. Hann er svo voða stoltur af þeim. :)

Myndirnar eru HÉR.

---




Sunday, March 24, 2013

Sunnudagskakan.

---

Það er ekkert leyndarmál að okkur fölskyldunni þykir súkkulaðikaka alveg svakalega góð. Og það er ekkert leyndarmál að ég finni mér endalausar afsakanir fyrir því að baka súkkulaðikökur. Og í dag var afsökunin sú að ég bara varð að prófa uppskrift frá uppáhalds matarbloggaranum mínum,The Pioneer Woman,sem ég hef ekki prófað áður.

Svo að ég bakaði kökuna. Og þessa mun ég sko baka aftur. Og jafnvel aftur. Og aftur..

Ótrúlega einföld,ótrúlega góð!
Fullkomin sunnudagskaka.




Ég gef Ree vinkonu minni orðið:
Ýtið HÉR.
(ég sleppti hnetunum þar sem synirnir eru ekki þeir djörfustu í matarmálum)

---

Friday, March 22, 2013

Vorboðar.

---

Heimilið okkar er eins og gróðurhús þessa dagana. Við erum búin að forsá fræjum og laukum í hvorki meira né minna en 14 ker og potta sem þurfa að vera hérna innan dyra næstu vikurnar,fram yfir síðasta frostið,svo að gróðurhúsafílingurinn verður bara að venjast.

En það verður allt þess virði þegar sumarið kemur og pallurinn verður fullur af fallegum,vel lyktandi og mikið litríkum blómum sem við sáðum alveg sjálf.

Strákarnir fengu allir að velja sér eitt blóm hver,og völdu sér allir dalíur. Svo völdu þeir sér potta,plöntuðu sjálfir og eru duglegir að vökva og fylgjast með..Dalíurnar eru ekki jafn snöggar að láta sjá sig eins og margt annað sem við settum niður,svo að þeir eru orðnir óþreyjufullir þessar elskur.

Smá sýnishorn af því sem er farið að kíkja upp úr moldinni:


Ilmertur,basilíka,gul lilja,flauelisblóm,morgunfrúr og graslaukur.

Þessar eru duglegastar:


Bleikar ilmertur.
Ef vel tekst til verða þær svona í sumar:


Ooooh drífðu þig sumar!!

---





Thursday, March 21, 2013

Throwback Thursday.

---

Ég horfði ca. trilljón sinnum á þessa mynd þegar ég var yngri. Jú víst.
Og þá var allt á VHS..hugsið ykkur allan tímann sem fór í það að spóla til baka.
-en alveg þess virði. 
Elska þetta loka atriði ennþá!


---

Friday, March 15, 2013

Pizza pizza.


---

Það er vinsælt á mörgum heimilum að baka pizzu um helgar. Ég geri oftast speltbotninn hennar Ebbu því hann er svo fljótlegur,en þegar ég hef tíma og langar í extra gúrmei pizzu þá geri ég þennan góða botn. Ég fékk uppskriftina hjá Máneyju vinkonu minni í Seattle eftir að hafa mætt í pizzapartý til hennar og smakkað pizzurnar hennar. Hann er rosalega bragðgóður,sem ég get sagt allt of sjaldan um pizzabotna. Og ég mæli sterklega með því að þið setjið bjór út í deigið,hann setur punktinn yfir i-ið. Í alvöru.

---

  • 8 dl hveiti
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk sykur
  • 2 1/2 tsk ger
  • 3 dl volgt vatn (gott að setja bjór á móti vatninu,t.d 50/50)
  • 2 msk olía
  • Blanda þurrefnum vel saman, passa að vatnið sé ekki of kalt og ekki of heitt.
  • Það er svo gott að láta þetta hefast í amk 1 klst. Stundum þarf það lengri tíma.

-Blandið þurrefnunum vel saman og passið að vatnið sé hvorki of heitt né kalt(ca.37gráður)

-Látið hefast í allavega eina klukkustund.

-Það er mjög þægilegt að láta hrærivélina um "erfiðið" ef þið eigið Kithenaid eða aðra vél með krók.

---

Það er allavega pizza og kósí hjá okkur í kvöld. :)



Góða helgi!