Saturday, February 23, 2013

Skonsur.


---

Mamma mín gerir bestu skonsur í heimi. Strákarnir mínir eru sjúkir í þær og alrei,já ég meina það: ALDREI borða þessi börn meira en þegar þeir komast í ömmuskonsur. Þess vegna er ég farin að baka þær hverja helgi,og verð alltaf jafn mikil mamma ársins í þeirra augum.
Það þarf ekki mikið til að gleðja þessa drengi mína.

---

Mömmu/ömmu skonsur:

2 dl. hveiti
1 dl. heilhveiti
3 tsk lyftiduft
3 egg
2,5-3 dl. mjólk

-Hrærið þurrefnum saman í skál.
-Bætið því næst mjólkinni saman við.
-Að lokum er eggjunum bætt við.

Passið að hræra ekki of lengi. Þá verða skonsurnar seigar og það er ekki nógu gott. :)

-Steikið svo á pönnu,og passið að  hafa ekki á of háum hita.
-Snúið skonsunni þegar farnar eru að myndast loftbólur í deiginu.

Okkur finnst skonsur bestar með smjöri,osti og rifsberjasultu. 
Og heimatilbúnu eggjasalati. 
-Og á sparidögum er best að hella á þær góðu hlynsírópi.

Mmmmm...

Hvet ykkur til að prófa..

:)

---




Wednesday, February 20, 2013

Vel gert Regína..


---

..not.

Vá hvað ég lélegur bloggari. En ég ætla mér svo sannarlega að viðhalda þessu bloggi, mér finnst æði að lesa gömul blogg frá sjálfri mér(vá hvað þetta hljómar sjálfhverft) þegar ég er í einhverri fortíðarþránni og rifja upp gamla tíma. Og oft er ég þá að lesa um hluti sem ég var hreinlega búin að gleyma...

En á meðan mig skortir orðin,þá drita ég bara inn myndum í staðinn. Í þetta sinnið Instagram myndum. Þessar eru frá ca. síðustu 3 vikunum  en Itunesið drap símann um daginn,já bara virkilega drap allt innra með honum greyinu, og ég allt í einu myndalaus með öllu. En þýðir ekki að gráta það..ekki lengur allavega.

---


Kona skellti sér í Kolaportið og lagði mikinn metnað í básinn sinn.


Loksins hitti ég litlu vinkou mína hana Jasmin Leu. Við erum strax svaðalega góðar vinkonur.


Nokkrum dögum seinna fórum við Jasmin Lesa svo út að labba. Við leyfðum mömmu hennar að koma með.


Á Öskudaginn átti ég einn lítinn,en samt svolítið stóran, Bjarnabófa.


..og einn hreinlega alltof krúttlegan Mario.


..og einn svona líka fáránlega sætan Bósa Ljósár. Já hún er rík þessi kona.


Enn og aftur fórum við vinkonurnar út að labba saman. Ég öfunda þessa af kósíinu sem hún á í þessum vagni sínum..


..Bjarnabófinn minn og co. á Öskuaginn. Snillingar,punktur.


Hér er litla,en samt svolítið stóra,barnið mitt eftir fyrstu slysó heimsóknina.  Smá gat á hausinn kallar á sleikjó í verðlaun.


Stóri fór svo að keppa á fótboltamóti um helgina og brilleraði eins og allt liðið hans. Snillingar,punktum!


Valentínusardagurinn er krúttlegur,sama hvað hver segir. Valentínusar dinnerinn hér var asískt kjúklingasalat.


Og að lokum ein af þessum litla,en samt svo stóra,hjartagosa sem telur niður í 5 ára afmælið eins og hann fái borgað fyrir það. 

---

-Þar til næst,
aðíó!

Tuesday, February 5, 2013

Command Hanging Strips.


---

Ég kynntist þeirri snilld sem "Command Hanging Strips" eru þegar við bjuggum í Seattle. Að rekast á þetta úti í Rite Aid var sem himnasending fyrir okkur þar sem við vorum í leiguhúsnæði og gátum ekki verið að negla í veggina og vesenast. Ég kom heim til Íslands með birgðir af þessu og kaupi alltaf meira í safnið þegar förinni er heitið til Ameríku.

Command Hanging Strips eru sumsé lím strimlar sem gera manni kleift að hengja myndir og fleira á veggina án þess að negla í vegginn. Og ef myndin kemur svo ekki nógu vel út þar sem þið hengduð hana upp,þá einfaldlega takið þið hana niður og hengið annars staðar. Ekkert mál, rífur ekki málninguna af og verður ekkert lím eftir á veggnum.

Ég hef einu sinni fundið þetta hér á Íslandi en þá kostaði það hönd,fót og nýra,svo að ég mæli með því að ef þið eigið leið til Ameríku, að kíkja í næsta Pharmacy og fá ykkur svona.

Kíkið endilega á heimasíðuna þeirra HÉR og sjáið myndbandið á forsíðunni,þar er sýnt hvernig þetta virkar.

Sni-hilld!

---