Monday, March 25, 2013

Ljósmyndarinn Róbert.

---

Róbert Elí,7 og hálfs árs(hálfa árið er mjög mikilvægt að sjálfsögðu),hefur alltaf haft mikinn áhuga á því að taka myndir. Hann hefur átt sína myndavél síðan hann var 5 ára og hefur verið duglegur að taka myndir á hana. Núna nýlega fór ég svo að treysta honum fyrir stóru vélinni minni og hann hefur verið að prófa sig áfram með hana. Hann er farinn að taka fínar myndir og hefur greinilega gott auga. Hann hefur fengið sitt eigið albúm inni á myndasíðunni minni,og við vorum að setja inn í það myndir frá því að við fórum í Húsdýragarðinn um daginn.

Endilega kíkið á fínu myndirnar hans. Hann er svo voða stoltur af þeim. :)

Myndirnar eru HÉR.

---




Sunday, March 24, 2013

Sunnudagskakan.

---

Það er ekkert leyndarmál að okkur fölskyldunni þykir súkkulaðikaka alveg svakalega góð. Og það er ekkert leyndarmál að ég finni mér endalausar afsakanir fyrir því að baka súkkulaðikökur. Og í dag var afsökunin sú að ég bara varð að prófa uppskrift frá uppáhalds matarbloggaranum mínum,The Pioneer Woman,sem ég hef ekki prófað áður.

Svo að ég bakaði kökuna. Og þessa mun ég sko baka aftur. Og jafnvel aftur. Og aftur..

Ótrúlega einföld,ótrúlega góð!
Fullkomin sunnudagskaka.




Ég gef Ree vinkonu minni orðið:
Ýtið HÉR.
(ég sleppti hnetunum þar sem synirnir eru ekki þeir djörfustu í matarmálum)

---

Friday, March 22, 2013

Vorboðar.

---

Heimilið okkar er eins og gróðurhús þessa dagana. Við erum búin að forsá fræjum og laukum í hvorki meira né minna en 14 ker og potta sem þurfa að vera hérna innan dyra næstu vikurnar,fram yfir síðasta frostið,svo að gróðurhúsafílingurinn verður bara að venjast.

En það verður allt þess virði þegar sumarið kemur og pallurinn verður fullur af fallegum,vel lyktandi og mikið litríkum blómum sem við sáðum alveg sjálf.

Strákarnir fengu allir að velja sér eitt blóm hver,og völdu sér allir dalíur. Svo völdu þeir sér potta,plöntuðu sjálfir og eru duglegir að vökva og fylgjast með..Dalíurnar eru ekki jafn snöggar að láta sjá sig eins og margt annað sem við settum niður,svo að þeir eru orðnir óþreyjufullir þessar elskur.

Smá sýnishorn af því sem er farið að kíkja upp úr moldinni:


Ilmertur,basilíka,gul lilja,flauelisblóm,morgunfrúr og graslaukur.

Þessar eru duglegastar:


Bleikar ilmertur.
Ef vel tekst til verða þær svona í sumar:


Ooooh drífðu þig sumar!!

---





Thursday, March 21, 2013

Throwback Thursday.

---

Ég horfði ca. trilljón sinnum á þessa mynd þegar ég var yngri. Jú víst.
Og þá var allt á VHS..hugsið ykkur allan tímann sem fór í það að spóla til baka.
-en alveg þess virði. 
Elska þetta loka atriði ennþá!


---

Friday, March 15, 2013

Pizza pizza.


---

Það er vinsælt á mörgum heimilum að baka pizzu um helgar. Ég geri oftast speltbotninn hennar Ebbu því hann er svo fljótlegur,en þegar ég hef tíma og langar í extra gúrmei pizzu þá geri ég þennan góða botn. Ég fékk uppskriftina hjá Máneyju vinkonu minni í Seattle eftir að hafa mætt í pizzapartý til hennar og smakkað pizzurnar hennar. Hann er rosalega bragðgóður,sem ég get sagt allt of sjaldan um pizzabotna. Og ég mæli sterklega með því að þið setjið bjór út í deigið,hann setur punktinn yfir i-ið. Í alvöru.

---

  • 8 dl hveiti
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk sykur
  • 2 1/2 tsk ger
  • 3 dl volgt vatn (gott að setja bjór á móti vatninu,t.d 50/50)
  • 2 msk olía
  • Blanda þurrefnum vel saman, passa að vatnið sé ekki of kalt og ekki of heitt.
  • Það er svo gott að láta þetta hefast í amk 1 klst. Stundum þarf það lengri tíma.

-Blandið þurrefnunum vel saman og passið að vatnið sé hvorki of heitt né kalt(ca.37gráður)

-Látið hefast í allavega eina klukkustund.

-Það er mjög þægilegt að láta hrærivélina um "erfiðið" ef þið eigið Kithenaid eða aðra vél með krók.

---

Það er allavega pizza og kósí hjá okkur í kvöld. :)



Góða helgi!

Sunday, March 10, 2013

Djöflaterta.


---

Himnesk djöflaterta:
..fyrir Jóhönnu..og alla hina sem elska góða súkkulaðiköku. :)




·         4 dl. hveiti
·         2 dl. sykur
·         1.5 dl. púðursykur
·         3 stór egg við stofuhita
·         2.5 dl. vatn
·         0,5 dl. mjólk
·         1,5 tsk lyftiduft
·         1,5 tsk matarsódi
·         ¾ tsk. salt
·         170 gr. smjör við stofuhita
·         1,5 dl. dökkt kakó
·         2 tsk. vanilludropar

 ---

Setjið smjörið í skál og hrærið það á miðlungshraða í ca. 2 mínútur. Hellið því næst sykrinum hægt út í á meðan smjörið er hrært,og leyfið að ganga í ca.4 mínútur.

Bætið kakóinu og vanilludropunum út í og hrærið í ca. 1 mínútu. Bætið einu eggi út í í einu og hrærið í 1 mínútu á milli eggja. 

Hitið mjólk og vatn í potti,rétt svo upp að suðu og takið af hellunni.

Hrærið saman í annari skál: hveiti,lyftidufti,matarsóda og salti. Bætið hægt og rólega út í smjörblönduna,ca hálfan dl í einu og hrærið vel á milli. Hrærið mjólkurblöndunni hægt út í þar til allt er komið vel saman.

Skiptið jafnt í tvö 9 tommu form og bakið í 180 gráðu heitum ofni í 30-35 mínútur.

Kælið vel áður en þið setjið kremið á.

---

KREM:

500 gr.flórsykur
80 gr.kakó
80 gr.brætt smjör
1 egg
1 tsk vanilludropar
3 msk sterkt uppáhellt kaffi (hægt að nota kaffið til að stjórna þykktinni á kreminu.)

Allt sett saman í skál og þeytt vel þar til það er orðið silkimjúkt. 

Voilá. :)

---


Thursday, March 7, 2013

Súpa!




Eins og veðrið er búið að vera að undanförnu hefur verið alveg tilvalið að malla góða súpu fyrir fjölskylduna. Þá er þessi hér sérstaklega góð. Það má vel sleppa pastanu,en það gerir þessa súpu svo saðsama og sérstaklega barnvæna. Það er allavega ekki oft sem synir mínir taka svona hraustlega til matar síns þegar það er súpa á boðstólum.


Rjómalöguð tómatsúpa með basilíku og pasta: (uppskrift fyrir 6-8 manns)
-stór uppskrift sem hægt er að minnka,en ótrúlega góð daginn eftir..og daginn eftir. :)

---

-1.l kjúklingasoð
-1/2 l.matr.rjómi
-chili tómatsósa
-laukur
-hvítlaukur
-100 gr.gulrætur
-100 gr.blómkál
-100 gr. brokkolí
-fersk basilíka
-100 gr. pasta eða spaghettí
-2 dósir niðursoðnir tómatar
-Vatn+hveiti
-Salt,pipar,kraftur

---

-Setjið 2-3 gróft skorna lauka í pott ásamt 4 fínsöxuðum hvítlauks rifum og hitið í olíu í okkrar mínútur.
-Hellið einum líter af kjúklingasoði út í og bætið 2 dósum af niðursoðnum tómötum saman við. Ég nota yfirleitt eina dós af „diced tomatoes“ og eina af „pureed tomatoes“ frá Hunt´s. Bætið svo 3-4 stórum stilkum af basilíku út í og leyfið þessu að malla í 5.mínútur(ekki bullsjóða).

-Bætið hálfum líter af matreiðslurjóma og hálfri flösku af Heinz chili tómatsósu saman við og hrærið vel. Hrærið saman 2 msk. af hveiti og 1 dl. af mjólk(enga kekki) og bætið við súpuna til að þykkja hana örlítið.
-Kryddið og bragðbætið eftir smekk. Ég nota salt,svartan pipar, kraft og chili tómatssósuna.

-Bætið svo niðurskornu blómkáli,brokkolíi og gulrótum út í og leyfið öllu að malla í ca. 10-15 min.

-Bætið því næst pastanu saman við og sjóðið súpuna þar til pastað er "al dente".

-Muna svo að veiða basilíku stilkana upp úr áður en þið berið súpuna fram.

-Svo föndrið þið bara við súpuna þar til hún er eins og þið viljið,ég er alltaf að bæta í hana og leyfi henni að sjóða leeengi ef ég hef tíma.

---

Að lokum eru hér þrjár myndir frá óveðursdeginum okkar:





..ég var að fíla þetta veður í botn!

-Sumarið kemur bara þegar það kemur. :)

---