Thursday, January 31, 2013

Sum lög.


---

Sum lög eru bara svo mikið "mmm"...

Misjafn er auðvitað smekkur manna, en í mínum eyrum er þetta lag algert nammi og er eitt mest spilaða lagið inni á iTunes hjá mér.


                                        

Þessa hljómsveit skal ég sjá á tónleikum eihvern daginn.

---

Wednesday, January 30, 2013

Gamalt verður nýtt.


---

Undanfarið hef ég verið að setja fínu borðsofustólana okkar niður í geymslu,einn í einu. Ég tími því varla að hafa þá uppi við á meðan eldhús og borðstofa eru beisiklí sami hluturinn. Ég tími sumsé ekki að nota þá mikið lengur sem eldhússtóla. Svo að ég hef látið mig dreyma um klassíska,skandinavíska eldhússtóla eins og við áttum þegar ég var lítil. Stólar sem þola mikla notkun og börn sem eru bara því miður ekki þau snyrtilegustu við matarborðið. Og börn sem virðast bara ekki geta lært það að það meigi ekki jugga sér fram og til baka á stólunum.

En nú er allt skandinavískt svo móðins,og þar af leiðandi: ekkert svo ódýrt. Og hvað gerir kona þá? Jú,hún leitar í Góða Hirðinn. Og viti menn. Þrjú stykki draumastólarnir. Þúsund krónur stykkið. Ég er ekki viss,en ég held að ég hafi heyrt kirkjukór syngja "haaaalelúja". Ég er ekki viss,en í minningunni var það þannig.

Eina vandamálið var að stólarir voru svartir og svolítið sjúskaðir. Og ég vildi hvíta stóla. Og ósjúskaða helst.

Næsta stopp var því Byko. Sandpappír,grunnur,málning og penslar.

Og svo heim. Pússa;ekkert svo mikið mál. Grunna;svolítið leiðinlegt,en ekkert svo mikið mál. Mála; svolítið meira mál,þar sem það er aðeins meira nákvæmnisverk,og ég er jú fljótfær og nenni stundum(oft) ekkert að vera að vanda mig of mikið.

En þá hóar kona í vandvirka manninn sinn sem klárar verkið svona líka lystilega. Ég vissi að það hefði verið einhver ástæða fyrir því að ég hefði gifst honum. Djók. En samt..Nei djók.

---


Það má sko jugga sér fram og til baka á þessum stólum!

---

Monday, January 28, 2013

Nýárs.


---

Það var svo yndislegt veður á Nýársdag,svo við fjölskyldan skelltum okkur í útifötin og í góða göngu í Heiðmörk.

Sjötti fjölskyldumeðlimurinn,myndavélin, var að sjálfsögðu með í för.

---








---


Sunday, January 27, 2013

Nei..sæl!


---

Gleðilegt nýja árið og velkomin á nýtt blogg,tileinkað tilraunum mínum í eldhúsinu og gríðarlegum áhuga mínum á fallegum heimilum og hlutum.

Ég hef áður slegið um mig í bloggheimum,en dró mig í hlé seinni hluta síðasta árs. Ég finn þó að mig vantar stað þar sem ég get fengið útrás fyrir allt blaður um fallega stóla, drauma sófaborðið og kökuuppskriftir. Þannig sleppur maðurinn minn undan því að þykjast áhugasamur þegar ég byrja slíkt blaður yfir sjónvarpinu á kvöldin. Hann hefur nefnilega jafn mikinn áhuga á þessum efnum,eins og ég hef lítinn áhuga á stáli,sem er jú einmitt í miklu uppáhaldi hjá honum blessuðum..En já,það er annað mál.

Til að keyra þetta í gang ætla að ég að skella inn uppskrift af gamla blogginu mínu. Amerískar brownies hafa verið í miklu (kannsi of miklu?) uppáhaldi hjá mér frá því að við Ástrós frænka eyddum fyrsta sumrinu okkar í Ameríkunni þegar við vorum 11 og 12 ára gamlar. Miðað við magnið af brownies sem ég innbyrgði það sumar,þá skyldi mann undra að ég hefði enn lyst á þeim,en klassíkirnar klikka ekki. Svoleiðis er það nú bara.

---


Amerískar brownies:




-Stillið ofn á 180 gráður

120 ml. olía
2 dl. sykur
2 egg
1 dl. hveiti
80 gr.kakó
1/2 tsk salt
1/2 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar

-Hrærið olíu og sykri vel saman
-Bætið eggjum og vanillu saman,hrærið aðeins þar til allt er komið saman
-Blandið öllum þurrefnum saman í aðra skál
-Bætið þurrefnunum saman við eggjamixtúruna

-Spreyið lítið eldfast mót og hellið mixtúrunni útí.
-Bakið í ca 20 min,eða þar til hliðarnar eru farnar að losna frá
-Kælið alveg áður en þið skerið.

---



---