---
Vá hvað ég lélegur bloggari. En ég ætla mér svo sannarlega að viðhalda þessu bloggi, mér finnst æði að lesa gömul blogg frá sjálfri mér(vá hvað þetta hljómar sjálfhverft) þegar ég er í einhverri fortíðarþránni og rifja upp gamla tíma. Og oft er ég þá að lesa um hluti sem ég var hreinlega búin að gleyma...
En á meðan mig skortir orðin,þá drita ég bara inn myndum í staðinn. Í þetta sinnið Instagram myndum. Þessar eru frá ca. síðustu 3 vikunum en Itunesið drap símann um daginn,já bara virkilega drap allt innra með honum greyinu, og ég allt í einu myndalaus með öllu. En þýðir ekki að gráta það..ekki lengur allavega.
---
Kona skellti sér í Kolaportið og lagði mikinn metnað í básinn sinn.
Loksins hitti ég litlu vinkou mína hana Jasmin Leu. Við erum strax svaðalega góðar vinkonur.
Nokkrum dögum seinna fórum við Jasmin Lesa svo út að labba. Við leyfðum mömmu hennar að koma með.
Á Öskudaginn átti ég einn lítinn,en samt svolítið stóran, Bjarnabófa.
..og einn hreinlega alltof krúttlegan Mario.
..og einn svona líka fáránlega sætan Bósa Ljósár. Já hún er rík þessi kona.
Enn og aftur fórum við vinkonurnar út að labba saman. Ég öfunda þessa af kósíinu sem hún á í þessum vagni sínum..
..Bjarnabófinn minn og co. á Öskuaginn. Snillingar,punktur.
Hér er litla,en samt svolítið stóra,barnið mitt eftir fyrstu slysó heimsóknina. Smá gat á hausinn kallar á sleikjó í verðlaun.
Stóri fór svo að keppa á fótboltamóti um helgina og brilleraði eins og allt liðið hans. Snillingar,punktum!
Valentínusardagurinn er krúttlegur,sama hvað hver segir. Valentínusar dinnerinn hér var asískt kjúklingasalat.
Og að lokum ein af þessum litla,en samt svo stóra,hjartagosa sem telur niður í 5 ára afmælið eins og hann fái borgað fyrir það.
---
-Þar til næst,
aðíó!
Geggjaðar myndir ástin mín :)
ReplyDeletehaha úps, ég kommentaði óvart sem þú!
ReplyDeleteVá,vel gert ! ;)
Delete