Thursday, March 7, 2013

Súpa!




Eins og veðrið er búið að vera að undanförnu hefur verið alveg tilvalið að malla góða súpu fyrir fjölskylduna. Þá er þessi hér sérstaklega góð. Það má vel sleppa pastanu,en það gerir þessa súpu svo saðsama og sérstaklega barnvæna. Það er allavega ekki oft sem synir mínir taka svona hraustlega til matar síns þegar það er súpa á boðstólum.


Rjómalöguð tómatsúpa með basilíku og pasta: (uppskrift fyrir 6-8 manns)
-stór uppskrift sem hægt er að minnka,en ótrúlega góð daginn eftir..og daginn eftir. :)

---

-1.l kjúklingasoð
-1/2 l.matr.rjómi
-chili tómatsósa
-laukur
-hvítlaukur
-100 gr.gulrætur
-100 gr.blómkál
-100 gr. brokkolí
-fersk basilíka
-100 gr. pasta eða spaghettí
-2 dósir niðursoðnir tómatar
-Vatn+hveiti
-Salt,pipar,kraftur

---

-Setjið 2-3 gróft skorna lauka í pott ásamt 4 fínsöxuðum hvítlauks rifum og hitið í olíu í okkrar mínútur.
-Hellið einum líter af kjúklingasoði út í og bætið 2 dósum af niðursoðnum tómötum saman við. Ég nota yfirleitt eina dós af „diced tomatoes“ og eina af „pureed tomatoes“ frá Hunt´s. Bætið svo 3-4 stórum stilkum af basilíku út í og leyfið þessu að malla í 5.mínútur(ekki bullsjóða).

-Bætið hálfum líter af matreiðslurjóma og hálfri flösku af Heinz chili tómatsósu saman við og hrærið vel. Hrærið saman 2 msk. af hveiti og 1 dl. af mjólk(enga kekki) og bætið við súpuna til að þykkja hana örlítið.
-Kryddið og bragðbætið eftir smekk. Ég nota salt,svartan pipar, kraft og chili tómatssósuna.

-Bætið svo niðurskornu blómkáli,brokkolíi og gulrótum út í og leyfið öllu að malla í ca. 10-15 min.

-Bætið því næst pastanu saman við og sjóðið súpuna þar til pastað er "al dente".

-Muna svo að veiða basilíku stilkana upp úr áður en þið berið súpuna fram.

-Svo föndrið þið bara við súpuna þar til hún er eins og þið viljið,ég er alltaf að bæta í hana og leyfi henni að sjóða leeengi ef ég hef tíma.

---

Að lokum eru hér þrjár myndir frá óveðursdeginum okkar:





..ég var að fíla þetta veður í botn!

-Sumarið kemur bara þegar það kemur. :)

---

6 comments:

  1. Èg var ekkert gedveikt ad fìla vedrid, thvi mèr var svo kalt. En èg fìla hessa sùpu og köku og thig sèrstaklega mikid.
    Ein ást ad eilifu

    ReplyDelete
  2. Jesús. Ég er með ferlega matarást á þér. Það er ekkert vandræðalegt neitt, svona í ljósi þess að ég hef aldrei hitt þig. Nei nei.

    p.s. en þessi kaka þarna ... hún er alveg svaaaaka girnileg líka sko... má ég fá uppskriftina af henni líka? ;)

    Kveðja,
    Jóhanna svanga

    ReplyDelete
    Replies
    1. Þessi djöflaterta er alveg ótrúlega góð ! Ég skal senda þér uppskriftina eða setja hana hér inn á morgun. :)

      Delete
  3. Já takk! :-)

    Kveðja,
    Jóhanna

    ReplyDelete
  4. Mmmm verð að prufa þessa.

    ReplyDelete