---
Það þarf ekki mikið til að gleðja þessa drengi mína.
---
Mömmu/ömmu skonsur:
2 dl. hveiti
1 dl. heilhveiti
3 tsk lyftiduft
3 egg
2,5-3 dl. mjólk
-Hrærið þurrefnum saman í skál.
-Bætið því næst mjólkinni saman við.
-Að lokum er eggjunum bætt við.
Passið að hræra ekki of lengi. Þá verða skonsurnar seigar og það er ekki nógu gott. :)
-Steikið svo á pönnu,og passið að hafa ekki á of háum hita.
-Snúið skonsunni þegar farnar eru að myndast loftbólur í deiginu.
Okkur finnst skonsur bestar með smjöri,osti og rifsberjasultu.
Og heimatilbúnu eggjasalati.
-Og á sparidögum er best að hella á þær góðu hlynsírópi.
Mmmmm...
Hvet ykkur til að prófa..
:)
---
mmmmmm girnó!!
ReplyDeleteHvað seturðu í eggjasalatið? :)
Knús, Kristbjörg
Ég set slatta af grófstöppuðum harðsoðnum eggjum og bæti við majonesi og sýrðum rjóma þar til það er orðið eins og ég vil hafa það. Bæti svo út í smá tómatsósuslettu,og krydda svo með karríi,aromati og svörtum pipar. Matvöndu börnin mín leyfa mér ekki að föndra mikið með eggjasalatið og vilja bara þetta klassíska. :)
DeleteKnús til baka elsku Kristbjörg!!
Ó mæ god. Slef.
ReplyDeleteEh, það er ekkert rosalega "gott" að kíkja á bloggið þitt þegar kona er loksins að reyna koma meðgöngukílóunum* af sér ... ;)
Kveðja,
Jóhanna
*jájá, ein alveg að bleima meðgöngunni sko ... haha aaahh, vandræðalegt ...
Haha þú ert nú meira yndið Jóhanna. :) Og mikið er ég glöð að þú nennir að lesa bloggið mitt.. :)
DeleteVerð að láta þig vita að ég skellti í þessar áðan og þær hurfu á nóinu. Var með þrjá fullvaxta hungraða karlmenn og tvo rosalega litla (;-)) og skonsunum var skóflað í sig á methraða. Ég fékk hálfa ...
ReplyDeleteÞær slógu því heldur betur í gegn! :-)
Kveðja,
Jóhanna
Jibbí,svo gaman að heyra! :)
Delete