Saturday, February 23, 2013

Skonsur.


---

Mamma mín gerir bestu skonsur í heimi. Strákarnir mínir eru sjúkir í þær og alrei,já ég meina það: ALDREI borða þessi börn meira en þegar þeir komast í ömmuskonsur. Þess vegna er ég farin að baka þær hverja helgi,og verð alltaf jafn mikil mamma ársins í þeirra augum.
Það þarf ekki mikið til að gleðja þessa drengi mína.

---

Mömmu/ömmu skonsur:

2 dl. hveiti
1 dl. heilhveiti
3 tsk lyftiduft
3 egg
2,5-3 dl. mjólk

-Hrærið þurrefnum saman í skál.
-Bætið því næst mjólkinni saman við.
-Að lokum er eggjunum bætt við.

Passið að hræra ekki of lengi. Þá verða skonsurnar seigar og það er ekki nógu gott. :)

-Steikið svo á pönnu,og passið að  hafa ekki á of háum hita.
-Snúið skonsunni þegar farnar eru að myndast loftbólur í deiginu.

Okkur finnst skonsur bestar með smjöri,osti og rifsberjasultu. 
Og heimatilbúnu eggjasalati. 
-Og á sparidögum er best að hella á þær góðu hlynsírópi.

Mmmmm...

Hvet ykkur til að prófa..

:)

---




6 comments:

  1. mmmmmm girnó!!

    Hvað seturðu í eggjasalatið? :)

    Knús, Kristbjörg

    ReplyDelete
    Replies
    1. Ég set slatta af grófstöppuðum harðsoðnum eggjum og bæti við majonesi og sýrðum rjóma þar til það er orðið eins og ég vil hafa það. Bæti svo út í smá tómatsósuslettu,og krydda svo með karríi,aromati og svörtum pipar. Matvöndu börnin mín leyfa mér ekki að föndra mikið með eggjasalatið og vilja bara þetta klassíska. :)

      Knús til baka elsku Kristbjörg!!

      Delete
  2. Ó mæ god. Slef.

    Eh, það er ekkert rosalega "gott" að kíkja á bloggið þitt þegar kona er loksins að reyna koma meðgöngukílóunum* af sér ... ;)

    Kveðja,
    Jóhanna

    *jájá, ein alveg að bleima meðgöngunni sko ... haha aaahh, vandræðalegt ...

    ReplyDelete
    Replies
    1. Haha þú ert nú meira yndið Jóhanna. :) Og mikið er ég glöð að þú nennir að lesa bloggið mitt.. :)

      Delete
  3. Verð að láta þig vita að ég skellti í þessar áðan og þær hurfu á nóinu. Var með þrjá fullvaxta hungraða karlmenn og tvo rosalega litla (;-)) og skonsunum var skóflað í sig á methraða. Ég fékk hálfa ...

    Þær slógu því heldur betur í gegn! :-)

    Kveðja,
    Jóhanna

    ReplyDelete